- 175g Hälsans Kök sojapylsur
- 3 skífur ferskur ananas
- Saft úr einu lime
- 1 stk vorlaukur saxaður
- 2 msk fersk mynta, fínhökkuð
- Salt og pipar
- 150g sykurbaunir
- 4 stk gulrætur
- 1 stk salathaus (má vera hvað sem er)
- 3 msk olía
- 1 stk hvítlauksrif
Aðferð
Skerið ananas í smá teninga og blandið saman með limesafa ,vorlauk,myntu og pipar,kælið. Sjóðið sykurbaunir í saltvatni í 3-4 mín, kælið. Skerið gulrætur í þunnar skífur. Rífið salathaus niður og blandið saman við sykurbaunir og gulrætur.
Hærið 2.msk olíu saman við salt og pipar og hellið yfir salatið.
Blandið hvítlauk,limesafa,pipar og 1 msk olíu saman og penslið pylsurnar.
Grillið í 2-4 mín á heitu grilli, snúið reglulega. Gott er að gefa með bakaða kartöflu með réttinum.